Um mig:
Það fegursta ljós sem lýsir gegn um þann sársauka sem lífinu fylgir er sú blessun að hafa átt þig. Leitin að hamingjunni byrjar og endar hjá þér. Ólýsanleg fegurð, yndislegur drengur, drengurinn minn.



frá Mömmu..







Ég heiti Hörður Frans og var tekin með keisaraskurði á sjúkrahúsi suðurlands þann 12 júlí kl 12:05..

Ég er sem sagt nýorðin 7 ára

Ég var mikill ofurhetju aðdáandi og uppáhaldið mitt var mismunandi eftir hvað er vinsælast..
Það hefur nú samt sem áður minnkað töluvert því ég er eiginlega orðin of "stór". Nú er ég meira fyrir að vera sem mest bara í tölvunni eða hlusta á tónlist svo finnst mér ágætt stundum að skreppa í körfubolta eða golf í nýja golfsettinu sem mamma og Guðmundur gáfu mér í 7 ára afmælisgjöf

Ég er duglegur mathákur,borða mikið af grænmeti og finnst grjónagrautur frábær.. Ég hef alltaf verið meira fyrir holla matinn þótt ég er aðeins farinn að sækja í sælgæti meira en ég gerði er ég samt mest fyrir ávexti og grænmeti...

Ég bý hjá mömmu minni í breiðholtinu síðan í febrúar 2005 en við bjuggum þar áður hjá ömmu Rúnu og afa Þorvaldi mömmu og pabba hennar mömmu, og þeim sem þar búa, á stokkseyri .. Snorri frændi minn, strákurinn hennar ömmu Rúnu sem er bráðum 12 ára, er góður vinur minn yfirleitt, okkur kemur nú samt oft illa saman því við erum báðir ákveðnar frekjudósir.. Guffi frændi stóri strákurinn hennar ömmu sem er að verða 21 ára er alltaf góður við mig, mér finnst hann svalur...

Mamma mín er með barn í maganum þegar þetta er skrifað og pabbi þessa barns er nú ekki pabbi minn en hann er samt voðalega góður við mig og við erum ágætis vinir. Hann heitir Guðmundur og á sjálfur 2 stráka fyrir.

Pabbi minn Pétur Harðarson býr í neshaganum í reykjavík og ég fer alltaf til hans aðrahverja helgi.. Við spilum mikið í tölvunni, förum í göngutúra og slökum heldur betur á. Lóa frænka systir hans pabba á líka heima í sömu blokk í neshaganum og við kíkjum alltaf til þeirra.. þau eru nefninlega með stöð 2.. ;)

Afi og Amma,pabbi og mamma hans pabba, búa á selfossi og við förum líka reglulega til þeirra og gistum stundum. Það er rosalega fínt líka, ég hitti þar oft frændsystkini mín sem eiga reyndar heima í kópavogi sem bróðir hans pabba á, Jóhönnu Viktor og Marín Birtu... Svo á ég líka vin þar sem heitir Palli.. Við hittum líka annan bróðir hans pabba sem býr líka á selfossi, en hann heitir Halli..

Mamma mín á svo annan pabba sem er reyndar alvöru pabbi hennar en ég kalla hann alltaf afa með stafina af því hann gengur við hækjur.. Hann og platamma mín Laufey ,sem eru samt ekki lengur saman, eiga 5 börn, allt systkini hennar mömmu minnar.. Hún er samt frekar leið því hún þekkir þau ekki nógu vel en hún og elsta systirin Eva sem er að verða 19 ætla að reyna að bæta eitthvað úr þessu..
Hin systkinin heita Kristín, Dagný, Díana og Geir Grétar

Ég er sem sagt mjög heppinn strákur, á stóra og yndislega fjölskyldu sem elskar mig..














Annað:
Krabbinn

22. júní - 22. júlí



Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.







Hérna eru heimasíður frændsystkina minna á barnalandi..

Fannar Snædal

Jóhanna Friðsemd

Viktor Andri Vestmann

Marín Birta Vestmann

Mosi (fósturgaukur Ömmu Rúnu)

Friðþjófur Tumi

Markús Steinar

Aðalsteinn Arnar















Þú ert gestur nr. 69970